Sunday, January 30, 2011

Hugleiðing um heilsuna

Með nýju ári koma ný markmið. Þorri íslendinga hoppar upp úr sófanum og  í næstu líkamsræktarstöð til að hrista af sér spikið. Í sumar ætla allir að verða orðnir flottir og fullkomnir eins og fyrirsæturnar á forsíðu Vogue.

Það er margkveðin vísa að maður eigi að elska sjálfan sig. Eina leiðin til að elska aðra, er að elska sjálfan sig fyrst. En hvernig fer þetta saman við háleit markmið líkamsræktarinnar? Líkamsræktin segir þér að þú þurfir að vera betri útgáfa af sjálfri þér. Þú ert ágæt nú þegar en ekkert spes. Hins vegar ef talan á vigtinni lækkar um nokkur stig og ummálið um nokkra sentimetra ert þú nær því að verða betri. Hvernig er hægt að elska sjálfan sig ef allt segir þér að þú sért ekki nógu góð. Þú mátt ekki bara vera ánægð ef þú ert með of stóran rass, ert eins og möffins í gallabuxum eða bingóvöðvinn lafir niður á læri. Þú verður að gera eitthvað og segja þér stanslaust að þú sért ekki nógu góð því hver er annars tilgangurinn? Ef við erum ánægð með okkur nú þegar, hver er þá tilgangurinn með þessu hoppi og sprelli?

Jú, heilsan á að vera í góðu lagi og það er allt gott og blessað. Fyrr má nú aldeilis fyrr vera. Nú getur maður ekki farið í mat til ömmu sinnar því þar verður maður að fúlsa við akfeitum kjötbollum í brúnni sósu og kolvetnaríkum kartöflunum. Kannski getur maður tínt upp í sig örlítið af salati en ekki láta þér detta það í hug ef það er sletta af mæjónesi á því. Ekki máttu nú líta á eftirréttinn því það eitt fitar þig um 800 grömm. Það eina sem skiptir jú máli er talan á vigtinni. Næst þegar þú ferð í fermingarveislu hjá fjarskyldum frænda getur þú ekki falið þig á bak við kökudiskinn þegar gamlar frænkur byrja að staðsetja þig í ættartrénu. Nei nei, þú skalt vera búin að borða fylli þína áður en mætt er svo þú getir afþakkað allar veitingar fermingarbarnsins. Í mesta lagi máttu kannski fá þér kaffi en ekki voga þér að hella út í það akfeitri mjólkinni svo ekki sé minnst á dauðann sem liggur í hinum hvíta sykri.

Talandi um veislur þá eru jól og páskar ekki undanskilin hinum breytta lífsstíl. Hamborgarahryggurinn er dauði í svínslíki og brúnuðu kartöflurnar eitur í dulargervi. Fáðu þér svona 200 grömm af hnetum eða þurrkuðum ávöxtum í kvöldmat á aðfangadag og vertu helst í öðru herbergi en fjölskyldan þegar hún borðar frómasinn því lyktin ein gæti freistað þín. Um páskana væri þér ráðlegast að leigja þér sumarbústað á Vatnajökli og dvelja þar á meðan þorri landsmanna belgir sig út af súkkulaðieggjum og sælgæti. Þú getur nú tekið með þeir eins og fjórar hrökkbrauðsneiðar og litla dós af kotasælu og auðvitað hleypur þú nokkra hringi í kringum sumarbústaðinn allavega 30 sinnum á dag til að brenna þessu öllu. Kannski getur þú fengið þér sundsprett í pottinum ef bústaðurinn er svo vel búinn. Svo er vonandi nógu kalt inni þannig að öll auka líkamsorka fer í að halda líkamanum heitum. Þetta er bara win-win. Þú kemur þá 17 kílóum léttari aftur í siðmenninguna á meðan hinir lúðarnir ná sér upp úr sykursjokkinu.

Mér finnst gaman að hreyfa mig og mér finnst gott að borða. Ég veit þó ekki alveg hvernig þetta fer saman. Ég tel að heilsa manna skipti afar miklu máli en ég get ekki sett samasem merki á milli þess að vera grannur og heilbrigður. Margir láta lífið í baráttu sinni við aukakílóin því þeim er svo ummunað að verða betri útgáfan að þeir svelta sig eða kasta upp allri næringunni. Svo er til fólk sem hefur svo mikla andstyggð á hreyfingu að það hefur sett sér það markmið að verða svo feitt og þungt að það getur ekki staðið upp án hjálpar byggingarkrana. Ég þekki grannt fólk sem temur sér afar óheilbrigt líferni og feitt fólk sem er mjög heilbrigt. Svo er einstaklingsmat á því hvað sé heilbrigt og hvað ekki. Ef mjólk getur komið í veg fyrir beinþynningu finnst mér sjálfsagt að drekka mjólk þrátt fyrir allar bráðdrepandi hitaeiningar sem henni fylgja. Ef ég fæ hágæða íslenskt lambakjöt ókeypis heiman frá mér finnst mér fáránlegt að fúlsa við því og kaupa mér rándýran kjúkling því hann er fituminni.

Það er hollt að hreyfa sig og það er hollt að borða. Við fáum bara eitt líf og því er mikilvægt að hugsa vel um líkamann sem okkur er gefinn en það er líka mikilvægt að njóta augnabliksins og ekki missa af áramótaskaupinu því þú varst upptekin við að telja kalóríurnar í matnum á gamlárskvöld. Hinn gullni meðalvegur verður að finnast en jafn erfitt er að finna hann eins og gullið sem hann er nefndur eftir. 

P.s. Ég bið mömmu mína innilega afsökunar á æðiskastinu sem ég tók á laugardaginn þegar ég komst að því, að þrátt fyrir stanslaust púl í ræktinni (langt frá því sem góðu hófi gegnir), hafði ég þyngst um 400 grömm. Stundum þarf ég að taka nokkur skref frá málverkinu til þess að sjá myndina.

No comments:

Post a Comment